föstudagur, mars 30, 2007

PHOTOBOOTH MADNESS

jæja núna eru allir í heimsókn hjá okkur. við fórum í topshop og það var ÖMURLEGT.
haha en við erum að fara á d-jamið og bara gaman..
EN hann antóníus keisari var að senda okkur kort og ég fór smá að gráta
ég ætla að pósta hérna nokkrum myndum af okkur...
love and peace and harmony


Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

Photo Sharing and Video Hosting at Photobucket

miðvikudagur, mars 28, 2007

Lifið


Sól efaðist um kynhneigð sína á tímabili.


en var fljót að draga þær efasemdir tilbaka...


ég var ánægð með það. þó að ég styðji hana í öllu.


þannig að sól byrjaði að hössla... STRÁKA.


strákarnir tóku vel í Sól


svo að vala þurfti að hysja uppum sig buxurnar.


til að fagna þessari ákvörðun Sólar að snúa aftur, fórum við í þyrluferð


og hittum Paris Hilton... Sem biður að heilsa by the way.


ákváðum að stoppa í kokkteil... ég, París og Sól.


...sem endaði ekki betur en svo.


eftir allt djammið ákvað ég að fá mér vinnu... Hér er mynd af mér í atvinnuviðtali.


og sól ákvað að selja sig, eftir alla vændisumfjöllunina...

En núna er flest allt komið í stand.

mánudagur, mars 26, 2007

Jæja, góðan og blessaðan.

Surprise heimsóknin til íslands yfir helgina var einstaklega vel heppnuð. þrátt fyrir að við sól séum eins og útbrunnar krakkhórur eftir megadjammið þessa nokkra daga. ég var glöð þegar það var hringt í morgun og sagt að vaktin okkar væri coveruð í HOF (house of fraser, our place of work) því ég er búin að missa röddina af sökum óhófsemi og óreglusemi og það væri sennielga ekki alltof vel metið í HOF, því í HOF are we supposed to do it the HOF WAY. Sem involverar lítið þynnku og almennan viðbjóð.

Nema hvað, Ísland var gamalt og gott og ofboðslega skemmtilegt. Mér fannst allt gaman. Frá djé-joð-amminu til IKEA ferðar; en einna mest söknuðum við e.t.v. þess að vera Á BÍL. Tjúbið má deyja fyrir mér (ekki það að við notum það oftar en við og við).

En eftir að vera komnar á svona BULLANDI yfirdrátt í djammbankanum, og búnar að vinna eins og HESTAR alla vikuna, þá tekur önnur eins helgi við er SNAZZY, SIGZ, SIGZ JR, OG SPRELLZ droppa við í Lundúnaborg.
En krakkar, take our word for it, svo erum við hættar. forever and ever and ever and ever.

es. ég elska alla vini okkar. þið eruð falleg og skemmtileg.

í tilefni íslandsferðar vil ég búa til heitt og ekki neitt lista.

heitt:
Begga: NEI NEI NEI NEI NEI NEI NEI
GusGus
Erla: Það ætlar einhver pía að skemma á mér andlitið
Hulda á fylleríi
IKEA
Julie Cooper
Friðrik Þór sem reyndi að vinna ást mína á NASA á laugardaginn.

ekki neitt:
Zilly sem fór heim um 1.
Ísafjörður og Hamrahlíðakórinn
Hverfiz
rúv

ég kveð að sinni með mynd af Erlu eftir klikkaða helgi:

mánudagur, mars 19, 2007

GÓÐAN DAG GÓÐAN DAG.


af mér og olfí er ekki mikið að frétta.
við erum byrjaðar að vinna í HOF (house of fraser) í city. Við vinnum 3 daga í viku frá 10-7. Ég verð að segja að í byrjun þá hélt ég að ég myndi fremja sjálfsmorð. Það hata okkur allir, og ég skef ekki af því þegar ég segi að við vorum eða erum lagðar í einelti.
Ólöf á eina vinkonu í sinni deild sem heitir Lynda, hún er 50-60 ára, er frá Glasgow og átti þar tvo pöbba en flutti hingað til london því maðurinn hennar fékk starf hér. Hún býr svona 4 klukkutíma frá HOF þannig að hún þarf alltaf að leggja af stað svo snemma í vinnuna þessi elska.
Mín vinkona heitir Karin og er frá Kongó en var svo send í heimavistarskóla í belgíu, ákvað svo að gerast smá rebel og flutti til london. Hún kynntist svo manni hér sem er líka frá Kongó og eiga þau nú 2 börn saman. Hún er eitthvað yfir fertugt.

JÁÁ LÍFIÐ ER SKO EKKI DANS Á RÓSUM ALLTAF STELPUR MÍNAR (ingibjörg stefanía pálmadóttir)

En við erum nú búnar að eignast nokkrar aðrar vinkonur í vinnuni. FÓLK ER GREINILEGA BÚIÐ AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ HVAÐ VIÐ ERUM SKEMMTILEGAR.

Ég á mér glæstan frama í brjósthaldara mælingum þar sem ég er að fara í námskeið í því á miðvikudaginn.

Annars erum við ólafía bara að flippa eins og vanalega.. förum heim með samkynhneigðum mönnum... skíðum með skoskum skíðakennurum.. þykjumst vera blaðamenn og tökum leigubíl helst allt sem við förum


LLAJ

Add to My Profile | More Videos

smá kveðja to all our FANS OUT THERE..

sólöf

mánudagur, mars 05, 2007

hello.....

eftir langa, bölvaða ígrundun höfum við ákveðið að breyta þessari síðu í myndablogg. Og þó gæti komið occasional bloggtexti inná milli.

Breytingar eru í vændum.... Nýir tímar framundan.

SÓLAFÍA

þriðjudagur, febrúar 06, 2007

Jæææja...
Eftir að hafa lagt land undir fót og tekið þá ákvörðun að flytja á vit ævintýranna hefur lífið leikið við okkur Sól.

olíufursta sonurinn hefur hinsvegar látið lítið á sér kræla og enskukunnáttu Sólar mætti helst líkja við enskukunnáttu BORATS.
en hún er samt sæt.

Eftir góða veltu á Hard Rock (fyrir framan alla, ég er með RISA marblett) og rúllandi veltu á þorrablóti hjá VÖLU OG BJÖSSA, erum við Sól ekki nálægt því að láta deigann síga.

Alltaf dregst sú tíð er störf okkar Sólar eiga að hefjast í House of Fraser, en við látum það ekki á okkur fá, heldur þvert á móti fáum okkur Croque Monsieur á Café Rouge og eignumst vini í local búðunum hér. Indverjinn í local búðinni hér er orðin sérstakur vinur minn. Svona fara samskipti okkar fram:
ég: "do you have any oranges?"
indian: "no, but i have.... TEQUILA"
ég: "so, no oranges then? How about apples?"
indian: "no party tonight?"
ég: *vandræðaleg* "no, just an orange party"
indian: "BUT LOOK HERE i have orange liquer"
ég: *labba út með tímarit sem mig langar ekkert í*

í gær var mamma í London og það var gaman. ég, og mamma stína og sólí fórum í sushi, leigubíla og verslunarflipp og áttum góðar stundir saman. Svo fór mamma klukkan hálf 6 og ég og sól ætluðum að powernappa. ég vaknað u.þ.b 13 tímum seinna.

En hvað er að frétta að heiman?
PLEASE SEND US SOME EMAILS OR MYSPACE MESSAGES.
miss u all
luuuuv

sunnudagur, febrúar 04, 2007



www.flickr.com/photos/julianasol

HÆ.
nú ætla ég að segja frá ævintýrum okkar ólafar hér í london, en ég efast um að einhver lesi þetta því allir vinir mínir eru svo miklar píkur.
Nú er liðin vika síðan við komum til london og margt er búið að gerast, við eignuðumst vin í húsinu okkar sem er hálfur sýrlendingur og hálfur breti, pabbi hans er olíufursti þannig að við bondum öll rosa mikið. Nýja polisían hjá mér og ólí er að panta könnur af kokteilum, reyndar erum við núna einar heima í mánuð og eigum NO money sem er rosa erfitt þegar maður býr í dýrasta hverfi london, þannig að við erum með feitan klink sjóð í mcdonalds poka, og áfengi flæðir um þessa íbúð þannig að allt er A-OKEY. Ég er búin að komast yfir hræðslu mína við að tala ensku loksins. Dæmi.
Heitur breskur maður: HI there darling, can i borrow a light?
Ég: jeees (vandræðilegasta pía heims)
HBM: kveikir í sígó. Thanks Darling, Cheers!
Ég: ætlaði að segja no problem en .. Ég: próóóbleeeeem
HBM: what?
Ég: nothing.

En ég er búin að safna kjarki og er full oftast þannig að ég er byrjuð að tala með breskum hreim sem er mad heitt dæmi.

En margt og mikið hefur skeð hér sem er eiginlega of mikið til að segja frá, Íslenskt Þorrablót í gær sem var fáránlega gaman og allt er eiginlega gaman núna.
Hugz n kizzez
Juliana Soul

mér líður svona

sunnudagur, janúar 21, 2007

ég og ólí að fá okkur rauðvínssopa eftir gott session á powerplateinu í london

laugardagur, janúar 20, 2007

PART B OOOOR PART-AAAAYY?


NÚNA ætlum við að leggja land undir fót og flytja til útlanda
þannig að við ætlum að byrja að blogga aftur um ævintýrin okkar í útlöndum .
Ólöf mun segja frá the crazy kidz í hamleys og ég mun segja frá öllu slúðrinu úr house of fraser.
Annars ætla ég að búa til lista yfir það sem er heitt eða ekki NEITT

HOT.

Scrubs
London
Prag
Bubbles
Skissa.net
part b or part A
Gummi Funny
Séð og Heyrt
Ping Pong
Hreyfill

NOT.

To do listar
Sólöf í galsa
Gasólíín
Krummar
Að vöffluvagninn er búinn að læsa innstungunni sinni
Matur
Jóga 4 lohoooosers
Korka
Korka
Korka
Korka
Korka


Korka.




kveðja Melkorka katrín


p.s. þetta er kærastinn minn hann gummi..

mánudagur, nóvember 20, 2006



8 DAGAR Í ÞESSA BAD BOYS
HLAKKA SMÁ TIL
BARA GAMAN

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Mér þykir leitt að segja ykkur það, kæru lesendur (fjöldi sem fer lækkandi með hverjum aðgerðarlausum klukkutíma á þessari blessuðu bloggsíðu), að ég er orðin leiðinleg.
Allt skopskyn sem ég áður sló um mig með, ásamt kaldhæðnislegum kommentum til þess að fela tilfinningar mínar, er horfið. Það hvarf með þeirri ákvörðun minni að verða edrú... Ákvörðun sem að tók á allan minn viljastyrk og alla mína krafta; ákvörðun sem að svipti mig þeim persónutöfrum sem að áður komu mér í gegnum súrt og sætt, og síðast en ekki síst, ákvörðun sem hefur gert mér ljóst að fæst vinasambönd okkar Sólar eru trú og traust. Fæst þeirra eru bundin trúnaðarböndum (nema kannski trúnó inná klói á Prikinu, og þá er allt gleymt daginn eftir) og fæst þeirra eru af alvöru.

að verða edrú eyðilagði líf mitt.

ólöf

mánudagur, október 30, 2006

TVÍFARAR DAGSINS


Ólöf og Elísabet...


Kate og Leonardo þegar allt lék í lyndi...

mánudagur, október 23, 2006

TVÍFARAR DAGSINS


Antoine, misunderstood struggling actor...



Heiðar Austmann í Misunderstood bolnum sínum...

fimmtudagur, október 19, 2006

ÞETTA SEINASTA PATHETIC ATTEMPT SKILAÐI SÉR Í ENGU ÖÐRU EN TVEIMUR ARMBÖNDUM OG DJAMMLEYFI.
WE ARE THE CHAMPIONS.

SÓLÖF

miðvikudagur, október 18, 2006

Hér er okkar seinasta, pathetic attempt til þess að komast á Airwaves. Við sendum e-mail á okkur seinustu von:

Kæra Ingibjörg,

Hér sitjum við í þungum þönkum í ástarhreiðrinu okkar að Sóleyjargötu 11. Öll ástríða er löngu horfin úr þessu sambandi, og eftir sitjum við tvær, með sárt ennið og snakkpoka to last a lifetime.

Þetta var ekki svona, einu sinni. Þvert á móti áttum við Sól fáar stundir þar sem við sátum aðgerðarlausar eða þar sem okkur féllust hendur. Núna, er eins og e-ð vanti; eins og grimmur veruleikinn hafi slegið okkur þéttingsfast í framan, skipti eftir skipti eftir skipti.

Og það var þá, sem að örþunn ljósglæta teygði sig í átt að dimmum skúmaskotum mengaðra huga okkar. Eitthvað sem gæti lyft níðþungum brúnum okkar ofan af gangstéttinni. Eitthvað sem að gæti jafnvel leyst úr þessari tilfinningatogstreitu, nei, þessari tilfinningaflækju sem að húmir eins og stöðugt sníkjudýr í þungum vömbum vér: Það er hátíð í bæ. Hátíð sem að gæti hugsanlega, og aðeins hugsanlega, svalað þessum gífurlega menningarþorsta okkar að einhverju leyti. Og það er bara hugsanlegt. En er það ekki þess virði? Þess heldur en að við göngum um götur Reykjavíkur, súrar á svip, dragandi lappirnar með svo svívirðilega lágt sjálfsálit að samnemendur okkar og vandamenn hafi áhyggjur af heilsufari okkar. Er ekki þess virði, elsku Dúdda, að við gerum heiðarlega tilraun til þess að reisa okkur upp, heiðarlega tilraun til þess að standa beinar í baki, á eigin fótum, á bestu tónlistarhátíð sem mun nokkurn tíma líta skammdegis"ljós" í Reykjavíkurborg?
Airwaves.
Og það myndi vera okkur eilífur heiður, ef að þú gætir hugsað þér að verja svo mikið sem nokkrum klukkustundum með okkur niðrí miðbæ, á sömu gömlu skemmtistöðunum, með sama gamla fólkinu, en með nýja sýn á hlutunum í kringum okkur. Sýn framtíðarinnar, sýn optimistans og síðast en ekki síst: sýn okkar þriggja. (Jón má samt alveg koma með ef hann vill)

Með von um skilning, vorkunn sem og samþykki,

Ólöf Skaftadóttir og Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir

TVÍFARAR DAGSINS

Doddi

Fred Durst

TVÍFARAR DAGSINS


Rósa


Dean, vinur hennar Rósu

þriðjudagur, október 17, 2006

Næstu helgi ætlum við Ólöf að rækta okkur að innan sem og að utan.
Við ætlum ekki á Airwaves eins og allir hinir RÓNA vinir okkur sem alltaf klukkan 9-10, loka götum eins og þeim sýnist, fá lánað pening fyrir búrger hjá öllum sem þeir þekkja og berja þá sem verða í vegi þeirra.
Við erum ekki eins og þau.
Í staðinn ætlum við að heimsækja ættingja okkur, passa fyrir fólk sem á SKILIÐ að fara út eitthvað annað en þið hin, elda góðan mat ( pasta með tómatsósu og osti) Drekka gott diet kók, leigja góða spólu (bring it on 2) láta maska framan í okkur og gráta yfir offituskjúklingunum í Oprah plús Extreme house makover.
SJáiði allt sem við erum að fara að gera á meðan þið eruð ógeðslega í ykkar eigin skít dansandi á einhverjum saurugum tónleikum, verandi þunn að borða hamborgara og verða ÓGEÐSLEGA FEIT OG ÓGEÐSLEG. Á meðan við ræktum glansandi, stælta líkama okkar, smyrjum okkur í vaselíni og tanning lotion.

... plís sýnið okkur samstöðu. Við viljum gráta.

(p.s. takið eftir að við tölum um okkur í fleirtölu)

TVÍFARAR DAGSINS



LABBA SHAFT



PARIS HILTON