mánudagur, nóvember 20, 2006



8 DAGAR Í ÞESSA BAD BOYS
HLAKKA SMÁ TIL
BARA GAMAN

sunnudagur, nóvember 19, 2006

Mér þykir leitt að segja ykkur það, kæru lesendur (fjöldi sem fer lækkandi með hverjum aðgerðarlausum klukkutíma á þessari blessuðu bloggsíðu), að ég er orðin leiðinleg.
Allt skopskyn sem ég áður sló um mig með, ásamt kaldhæðnislegum kommentum til þess að fela tilfinningar mínar, er horfið. Það hvarf með þeirri ákvörðun minni að verða edrú... Ákvörðun sem að tók á allan minn viljastyrk og alla mína krafta; ákvörðun sem að svipti mig þeim persónutöfrum sem að áður komu mér í gegnum súrt og sætt, og síðast en ekki síst, ákvörðun sem hefur gert mér ljóst að fæst vinasambönd okkar Sólar eru trú og traust. Fæst þeirra eru bundin trúnaðarböndum (nema kannski trúnó inná klói á Prikinu, og þá er allt gleymt daginn eftir) og fæst þeirra eru af alvöru.

að verða edrú eyðilagði líf mitt.

ólöf